Fyrsti maí!
Verkalýðsdagurinn 1. maí er greinilega runninn upp. Sit hér á Segafredo og fylgist með verkalýðshetjunum þramma niður Laugaveginn kyrjandi baráttusöngva og veifandi rauðum fánum. Á Moggavefnum les maður um kröfugöngu kommúnista í Mosvku sem virðast vilja endurvekja gömlu sof-ét-tímana, ef hin geysilega öfluga rússneskukunnáttan mín bregst ekki bogalistin.
Ég fylgist með og votta þeim virðingu með því að sötra latté-inn minn meðan meðan ég horfi á skrúðgönguna út um gluggann. Einhvern veginn finnst manni þetta þó vera hálfgerð tímaskekkja. Heyja menn ekki verkalýðsbaráttuna í gegn um netið í dag, eins og allt annað?
En það er þó allavega sól og skítsæmilegt veður!
Og maður er í fríi úr vinnunni, og það er ævinlega gleðiefni að fá tækifæri til að slæpast og hugsa um gang heimsins :)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home