Monday, May 09, 2005

Dag einn á hóteli

Hótelið, sem við Maggi ásamt flestum í íslenska hópnum gistum á heitir hinu mjög svo hljómfagra nafi Hótel Úkraína, sem mun vera statt rétt við Sjálfstæðistorgið í Kænugarði (af hverju er ekki til Sjálfstæðistorg á Íslandi? ... hmmm). Hér er slóð inn á hótelið góða: Hotel Ukraine. Við Maggi gistum á einhverju sem kallast "tween room, 2-th class (?!?)", mun væntanlega eiga að vera twin room 2nd class. Eins og sést á myndinni neðst niðri felur það í sér svona spennandi bunkera með e-r tígrismynstri. Ég sé fyrir mér draumfarir miklar í þessum rúmum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home